Veikindi maka eða barna
Heimilt er að greiða dagpeninga í allt að 60 daga vegna langvarandi veikinda maka eða barna sjóðfélaga enda missi hann launatekjur vegna þeirra.
ATH!
Þegar sótt er um dagpeninga þurfa eftirfarandi gögn að fylgja:
- Vottorð vinnuveitanda
- Læknisvottorð sem staðfestir óvinnufærni á því tímabili sem sótt er um sjúkradagpeninga.
- 2 síðustu launaseðlar (hægt að sækja af heimabanka eða hjá atvinnurekanda)
- Staðfesting frá RSK um nýtingu persónuafsláttar (þjónustuvefur RSK.IS)
Athugið að mjög mikilvægt er að umsókn og fylgiskjölum vegna dagpeninga sé skilað eigi síðar en 20. þess mánaðar sem veikindarétti líkur.