Tannlæknakostnaður

Sjóðfélagi sem hefur verið félagsmaður í 12 mánuði af síðustu 24 getur sótt um styrk vegna tannlæknakostnaðar.  Styrkurinn nemur 50% af kostnaði sem fer umfram 50.000 kr. á 24 mánaða tímabili, þó að hámarki 150.000 kr. Réttur til styrkja stofnast ekki aftur fyrr en 12 mánuðir eru liðnir frá því að 24 mánaða tímabilinu lýkur.

Hægt er að sækja um styrkinn oftar en einu sinni á 24 mánaða tímabili. Kvittanir/aðgerðardagsetningar mega aldrei vera eldri en 12 mánaða gamlar.