Athugið: Síðasti dagur til að skila inn gögnum er 16. desember 2024
Vert er að minna á að í desember þarf að skila inn gögnum fyrr en venjulega til Styrktarsjóðs BSRB.
Greiðsla dagpeninga og styrkja vegna desembermánaðar fer fram í síðasti lagi 30. desember og verður það síðasti greiðsludagur á þessu ári.
Skila þarf gögnum til félagsins í síðasta lagi mánudaginn 16. desember, til að ná þessari útborgun. Það sem kemur inn eftir þann tíma verður greitt í janúar 2025.
Almennir styrkir
Sjóðfélagar verða að skila reikningi með nafni og kennitölu umsækjanda. Fjöldi meðferða og upphæð þarf að koma fram ef sótt er um styrk vegna meðferða. Greiðslukvittun úr heimabanka er ekki gildur reikningur.
Sjúkradagpeningar
ATH: Sjóðfélagar sem eru í veikindaleyfi og hyggjast sækja um hjá sjóðnum skulu hafa samband tímanlega áður en veikindaréttur klárast í síma 525-8380. Réttur til sjúkradagpeninga miðast við gildan ráðningarsamning. Vottorð frá vinnuveitanda verður að fylgja umsókn.
Veikindi á meðgöngu
Sjóðfélagar sem eru veikir vegna meðgöngu geta sótt um lengingu hjá Fæðingarorlofssjóði ef veikindin vara lengur en mánuð fyrir áætlaðan fæðingardag barns. Sjá reglur Fæðingarorlofssjóðs: Lenging fæðingarorlofs
Ef veikindin vara skemur en mánuð fyrir áætlaðan fæðingardag barns skal hafa samband við Styrktarsjóðinn í síma 525-8380.
Úthlutunarreglur Styrktarsjóðs BSRB
Sjóðfélagar öðlast rétt til úthlutunar úr Styrktarsjóði BSRB eftir 6 eða 12 mánaða iðgjaldagreiðslur.
Umsókn um sjúkradagpeninga skal skilað inn fyrir 15. hvers mánaðar en að jafnaði er greitt út síðasta dag hvers mánaðar eða næsta virka dag á eftir.