Styrktarsjóður BSRB

 

 

Fæðingarstyrkur

Sjóðfélagi sem hefur verið starfandi síðustu 6 mánuði fyrir fæðingu barns og hefur gildan ráðningarsamning við upphaf fæðingarorlofs á rétt á styrk.

Styrkurinn miðast við starfshlutfall að lágmarki 25%.

Styrkurinn er 170.000 kr. miðað við fullt starf. Styrkurinn er tvöfaldur við fleirburafæðingu.

Sömu reglur gilda um ættleiðingar barna yngri en 5 ára.

Hálfur styrkur er greiddur vegna fósturláts eftir 18 vikur og andvanafæðingar. Staðgreiðsla er dregin af styrknum.

Umsókn þarf að hafa borist innan 18 mánaða frá fæðingu barns.

Fylgigögn: Skila þarf umsóknareyðublaði, fæðingarvottorði útgefnu af Þjóðskrá og vottorði launagreiðanda um ráðningarkjör, sem vinnuveitandi fyllir út.

Styrkir