Reglugerð fyrir Styrktarsjóð BSRB
1. gr. Nafn sjóðsins og heimili
1.1 Sjóðurinn heitir Styrktarsjóður BSRB.2. gr. Sjóðfélagar
2.1 Sjóðfélagar eru félagar eftirtalinna félaga: Félag flugmálastarfsmanna ríkisins, Félag opinberra starfsmanna á Austurlandi, Félag opinberra starfsmanna á Suðurlandi, Félag opinberra starfsmanna á Vestfjörðum, Félag starfsmanna stjórnarráðsins, Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna, Sjúkraliðafélag Íslands, Starfsmannafélag Akraness, Starfsmannafélag Dala- og Snæfellsnessýslu, Kjölur stéttarfélag starfsmanna í almannaþjónustu, Starfsmannafélag Fjarðabyggðar, Starfsmannafélag Garðabæjar, Starfsmannafélag Hafnarfjarðar, Starfsmannafélag Húsavíkur, Starfsmannafélag Kópavogs, Starfsmannafélag Mosfellsbæjar, Starfsmannafélag Ólafsfjarðar, Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar, Starfsmannafélag Ríkisútvarpsins, Starfsmannafélag Seltjarnarness, Starfsmannafélag Skagafjarðar, Starfsmannafélag Suðurnesja, Starfsmannafélag Sveitarfélagsins Árborgar, Starfsmannafélag Vestmannaeyjabæjar, Tollvarðafélag Íslands.3. gr. Verkefni sjóðsins
3.1 Verkefni sjóðsins er að veita sjóðfélögum Styrktarsjóðs fjárhagsaðstoð í veikinda- og slysatilvikum en maka eða eftirlifandi börnum ef sjóðfélagi deyr.4. gr. Tekjur
4.1 Tekjur sjóðsins eru skv. 3. gr. samkomulagsins undirrituðu 24. október 2000 þar sem kveðið er á um iðgjaldagreiðslur launagreiðenda í fjölskyldu og styrktarsjóð.5. gr. Stjórn og rekstur
5.1 Aðalfundur styrktarsjóðs skal haldinn í tengslum við aðalfund BSRB ár hvert. Hvert aðildarfélag sjóðsins hefur eitt atkvæði á aðalfundi.6. gr. Reikningar og endurskoðun
6.1 Reikningar sjóðsins áritaðir af stjórn hans og löggiltum endurskoðanda skulu lagðir fyrir aðalfund til samþykktar. Reikningsár sjóðsins er almanaksárið.7. gr. Úttekt óháðra eftirlitsaðila
7.1 Fimmta hvert ár að minnsta kosti skal stjórn sjóðsins fá óháðan tryggingafræðing eða löggiltan endurskoðanda til þess að meta framtíðarstöðu sjóðsins og hvort sjóðurinn geti staðið við skuldbindingar sínar og semja skýrslu til stjórnar um athugun sína.8. gr. Ávöxtun sjóðsins
8.1 Heimilt er að ávaxta fé sjóðsins með eftirfarandi hætti;9. gr. Ráðstöfun fjármuna
9.1 Ávallt skal þess gætt að ráðstöfun fjármuna sjóðsins brjóti ekki í bága við tilgang hans eða verkefni sbr. 3. gr.10. gr. Réttur til styrkveitinga úr styrktarsjóði BSRB
10.1 Rétt til styrkveitinga úr sjóðnum eiga sjóðfélagar sem uppfylla eftirtalin almenn skilyrði styrkveitingar hverju sinni:11. gr. Styrkveitingar
11.1 Bótaflokkar sjóðsins eru:12. gr. Lausn frá greiðsluskyldu
12.1 Ef farsóttir geisa getur sjóðstjórn leyst sjóðinn frá greiðsluskyldum sínum um stundarsakir. Einnig getur sjóðstjórn ákveðið að lækka um stundarsakir greiðslur ef afkomu sjóðsins virðist hætta búin.13. gr. Tilhögun greiðslna úr sjóðnum
13.1 Afgreiðsla sjóðsins skal vera á skrifstofu Styrktarsjóðs BSRB.14. gr. Fyrning bótaréttar og greiðslna
14.1 Umsókn skal hafa borist skrifstofu sjóðsins eða hafa verið póstlögð áður en 12 mánuðir eru liðnir frá því að réttur til greiðslu stofnaðist, t.d. frá því að tekjutap hófst eða andlát varð annars fyrnist bótaréttur. Krafa til greiðslu samkvæmt ákvörðun sjóðsins fyrnist hafi henni ekki verið vitjað innan 12 mánaða frá því að tilkynning barst um greiðsluna.15. gr. Endurgreiðsla iðgjalda/úrsögn út sjóðnum
15.1 Iðgjöld sjóðsins endurgreiðast ekki.16. gr. Upplýsingaskylda
16.1 Stjórn sjóðsins er skylt að upplýsa sjóðfélaga um rétt þeirra til aðstoðar sjóðsins með útgáfu bæklinga, dreifirita eða í handbókum sem dreift er til allra félagsmanna.17. gr. Breyting á fjárhæðum og styrkjum
17.1 Stjórn sjóðsins skal leggja fyrir aðalfund breytingar á almennum reglum um fjárhæðir styrkja sem sjóðurinn greiðir.18. gr. Breytingar á reglugerðinni
18.1 Breytingar á reglugerðinni verða aðeins gerðar á aðalfundi og þurfa þær að vera samþykktar með 2/3 hluta greiddra atkvæða fundarins. Slíkrar tillögu skal getið í fundarboði.19. gr. Gildistaka
19.1 Reglugerð þessi tekur gildi hinn 01.01.2005.20. gr. Birting
20.1 Reglur þessar, svo og breytingar á þeim, skal birta opinberlega á vettvangi BSRB, t.d. í BSRB tíðindum og/eða á heimasíðu BSRB.Samþykkt á aðalfundi Styrktarsjóðsins 19. nóvember 2004.
Til bakaÁstríður Jónsdóttir
Sími: 525-8381
Netfang: astridur@styrktarsjodur.bsrb.is
Lilja Ómarsdóttir
Sími: 525-8387
Netfang: lilja@styrktarsjodur.bsrb.is
Ólafur Bjarni Andrésson framkvæmdastjóri
Sími: 525-8382
Netfang: olafur@styrktarsjodur.bsrb.is
Vilborg Kristjánsdóttir
Sími: 525-8381
Netfang: vilborg@styrktarsjodur.bsrb.is
Stjórn sjóðsins, kjörin í nóvember 2007
Aðalmenn:
Garðar Hilmarsson
Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar
gardar@strv.bsrb.is
Torfi Friðfinnsson
Félag opinberra starfsmanna á Suðurlandi
torfi@eldhorn.is
Kristín Guðmundsdóttir
Sjúkraliðafélag Íslands
kristin@slfi.is
Þórveig Þormóðsdóttir
Félag starfsmanna stjórnarráðsins
thorveig.thormodsdottir@mrn.stjr.is
Guðbjörg Antonsdóttir
Kjölur
gadalvik@isl.is
Gunnar Richardsson
Starfsmannafélag Garðabæjar
gunnarrich@gardabaer.is
Guðlaugur Magni Davíðsson
Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna
gmd@isl.is
Styrkir